Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf

1.jpg

 

 

Raddir fullorðinna notenda náms- og starfsráðgjafar á Norðurlöndum

Niðurstöður norrænnar rannsóknar í náms- og starfsráðgjöf meðal fullorðinna hafa verið birtar í skýrslu sem ber heitið Voice of users: Promoting quality of guidance for adults in the Nordic countries. Markmiðið með rannsókninni er m.a. að kanna að hvaða marki notendurnir eru virkir þátttakendur í þróun náms- og starfsráðgjafar fyrir fullorðna á Norðurlöndum. Í rannsókninni er einnig leitað svara við því hvaða áhrif ráðgjöfin hefur á þá sem notfæra sér hana.

Nálgast má skýrsluna með því að smella á myndina hér að ofan.

Upplýsingaveita
um nám og störf

SÆNS fékk styrk Starfsmenntaráðs til að gera þarfagreiningu og framkvæmdar- áætlun um upplýsingakerfi og vefráðgjöf um nám og störf árið 2010. Skýrsla um niðustöður er að vænta í haust.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér.


SAENS

Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf er rannsókna- og þróunarsetur við Háskóla Íslands. Helsta hlutverk setursins er að auka og efla rannsóknir á sviði náms- og starfsráðgjafar á Íslandi. Upplýsingar um einstök verkefni og starfsemi setursins er að finna hér á heimasíðunni og einnig er hægt að senda tölvupóst á: gudrunbirna@gmail.com. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Birna Kjartansdóttir,  verkefnisstjóri SAENS í s. 525-5874 eða 698-8430.